Öruggari samgöngur á rafhjóli

Hjólreiðar eru sannarlega skemmtileg upplifun fyrir jafnt unga sem aldna. Rafhjól gera þessa afþreyingu aðgengilega fyrir alla, óháð aldri eða líkamlegum takmörkunum. Á sama tíma er fólk um allan heim að verða umhverfismeðvitaðra og eftirspurn eftir rafhjólum eykst nú á ógnarhraða.

Auk þess er þetta frábær hreyfing sem styrkir hjarta- og æðakerfið og bætir almenna heilsu. Auk þess að spara peninga á dýru eldsneyti leggurðu þitt af mörkum til að bjarga plánetunni.

Rafhjól eru víða orðin hluti af daglegri rútínu fólks. Margir nota þau í útréttingar og daglegan ferðamáta, sem gerir þau jafn fjölhæf og venjuleg hjól en um leið „fullkomnari“; þetta er einfaldlega frábær samgöngumáti á hverjum degi.

RÁÐ FYRIR ÖRUGGARI SAMGÖNGUR

Rafhjól eru oft töluvert þyngri en hefðbundin hjól og þau eru nokkuð hröð, sem getur gert þau varhugaverð í kröppum beygjum. Þegar þú hjólar á rafhjóli verðurðu að tryggja öryggi þitt frá upphafi til enda. Hér eru nokkur einföld öryggisráð sem gott er að kunna:

VERTU SÝNILEG/UR

Allir hjólreiðamenn þurfa að átta sig á því að bílar eru eðlilegur hluti af götumyndinni, en rafhjól? Ekki alveg jafn mikið. Rafhjól sameinar hættur reiðhjólsins og hraða mótorhjólsins. Spennandi, en bara ef þú fylgir reglunum. Ökumenn eru ekki alltaf „stilltir inn á“ að sjá hjólreiðafólk á veginum og búast því sjaldan við þeim. Þess vegna verður þú að gera þig eins sýnilega/n og mögulegt er. Það er algjör nauðsyn að klæðast endurskinsfatnaði. Gættu þess líka að endurskinsmerki á hjólinu sjálfu séu sýnileg og grípi augað.

SKIPULAGÐU ÞIG

Skipulag, skipulag, skipulag. Gerðu skýra áætlun í hvert sinn sem þú yfirgefur heimilið. Passaðu að vera með nóg af vökva og taktu með þér vatnsbrúsa eða orkudrykk. Það getur líka sprungið á rafhjóli, svo vertu viss um að vera með pumpu meðferðis og að rafhlaðan sé fullhlaðin. Ef þú ætlar að kanna nýjar slóðir eða stíga er gott að hafa varadekk og verkfæri við höndina í bílnum eða í bakpoka.

ÖRYGGISBÚNAÐUR

Að nota hjólahjálm er grunnurinn að öryggi, en það er bara byrjunin. Hlífðarhanskar með bólstrun verja lófana ef þú dettur og halda á þér hita í kulda. Síðbuxur og skór með góðu gripi verja fæturna fyrir veðri og vindum. Notaðu létt efni sem andar á sumrin, en vatnsheldan og einangrandi fatnað á veturna og í rigningartíð. Rafhjólið þitt ræður við nánast hvaða veður sem er, gættu þess að þú gerir það líka.

HAÐU SJÓNINA SKÝRA

Notaðu góð hjólagleraugu til að sjá betur í dagsbirtu. Þessi gleraugu verja augun fyrir ryki, rigningu og öðrum aðskotahlutum. Auk þess draga þau úr glampa frá sólinni og auka skerpu þegar birtan er lítil. Of mikil sól? Ekki hafa áhyggjur, hún mun samt ekki skyggja á þig og rafhjólið þitt.

VERTU Á VERÐI

Ef þú ert að spá í að hlusta á uppáhalds hlaðvarpið þitt eða lagalista á leiðinni, þá skaltu fara varlega!. Alveg eins og sjónin, þá eru eyrun lífsnauðsynleg þegar þú stýrir hvers kyns farartæki. Ef þú heyrir ekki í bílflautum eða umhverfinu eru miklar líkur á að þú og rafhjólið lendið í slysi, sem er einmitt það sem við viljum forðast.

Að lokum má segja að rafhjól séu að gjörbylta því hvernig fólk ferðast á milli staða. Þau bjóða upp á skemmtilegan, umhverfisvænan og fjölhæfan samgöngumáta sem mun verða normið fyrr en varir. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa öryggisráðin í huga fyrir þægilegra ferðalag. Svo, græjaðu þig, gættu fyllsta öryggis og njóttu ferðarinnar!

Back to top