Fáðu sem mest út úr hjólatúrnum

Þú elskar að hjóla og vilt færa upplifunina á næsta stig. Í lengri ferðum þarftu mikla orku og þá reynir á líkamlegan kraft og þol. Þar fær rafhjólið þitt að skína, og það hefur aldrei verið auðveldara að bæta heilsuna. Við skulum kanna hvernig og hvers vegna rafhjól eru frábær kostur fyrir heilsu og líkamsrækt.

BREKKURNAR

Þetta virðist oft vera erfiðasta verkefnið, sérstaklega á hefðbundnu reiðhjóli. Að horfa upp bratta brekku getur fyllt mann eftirsjá yfir því að hafa valið hjólið sem ferðamáta, og það gæti hæglega orðið endalokin á hjóla- og ræktarferðalaginu þínu. Með hjálp rafhjóls geturðu hins vegar sigrað brekkurnar með auðveldum hætti. En það er ekki allt; þú getur líka notað þær til að byggja upp styrk og þol. Hvernig? Þú einfaldlega hjólar upp brekkuna og með tímanum minnkar þú aðstoðina (pedal assist) jafnt og þétt og hættir að treysta á rafmagnið. Þetta gefur þér hið fullkomna tækifæri til að sigrast á brekkunni sem þig kveið fyrir svo lengi, á sama tíma og þú kemst í form. Getur það verið betra?

moving-ride.gif

⁠GÍRARNIR ERU VINIR ÞÍNIR

Þetta gæti ekki verið einfaldara: því hærri gír, því meira viðnám og kraftur. Takturinn skiptir miklu máli. Reyndu að finna gullna meðalveginn þar sem það er hvorki of auðvelt né of erfitt að stíga, og þá ertu komin/n með þetta. Gott ráð er að halda sama flæðinu; um leið og þér finnst of auðvelt að stíga, skiptirðu einfaldlega í þyngri gír til að ná aftur þessu fullkomna jafnvægi milli krafts og áreynslu. Rafhjól eru búin gírum alveg eins og hefðbundin hjól, sem gerir þér auðvelt fyrir að laga álagið að þínu formi.

REGLULEG ÞJÁLFUN

Þegar þú hjólar byggirðu upp vöðva með reglusemi. Algengur misskilningur í líkamsrækt er að maður þurfi alltaf að taka á því AF ÖLLU AFLI. Auðvitað er mikilvægt að reyna á sig, en regluleg hreyfing er mikilvægari en ein og ein æfing með púlsinn í 200 slögum. Rafhjól bjóða upp á mikla ánægju og gleði samhliða hæfilegri áreynslu. Þú getur ekki aðeins skorað á sjálfan þig heldur líka farið lengri vegalengdir án þess að leiðast. Farðu og kannaðu nýja staði og færðu líkamsræktina á næsta stig.

HEILSA DEKKJANNA

Þetta segir sig sjálft! Vel pumpuð dekk halda þér öruggum og stöðugum, nema undirlagið sé hált, en þá eykur lágur þrýstingur gripið. Þú vilt ekki missa af æfingunni vegna þess að það springur hjá þér. Með réttum loftþrýstingi rúllar rafhjólið áreynslulaust. Það er líka alltaf góð regla að halda sig innan ráðlagðs PSI-sviðs; ef þú ferð of lágt eða of hátt áttu á hættu að skemma dekkin. Rafhjól þurfa góð dekk eins og öll önnur farartæki, svo passaðu vel upp á viðhaldið.

Það er eðlilegt að stressast upp ef maður verður strandaglópur úti í óbyggðum, en þú þarft þess ekki, og þess vegna eru rafhjól til. Ekki bara hreyfa þig til að brenna hitaeiningum, gerðu það líka til að hafa gaman, og þá muntu aldrei rjúfa rútínuna. Gangi þér vel!


Back to top