Persónuverndarstefna og meðferð persónuupplýsinga

VEFVERSLUN

Þegar þú verslar vörur í vefversluninni okkar þarftu að gefa upp kreditkortaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar. Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar til að hægt sé að ganga frá greiðslu og senda vörurnar á flutningsaðila. 

SJÁLFVIRK UPPLÝSINGASÖFNUN

Auk persónuupplýsinga sem þú gefur upp söfnum við líka upplýsingum sjálfkrafa með vefkökum (cookies). Við notum vefkökur aðallega til að gera heimasíðuna ánægjulegri í notkun og bæta upplifun notandans. Þær sýna okkur líka hvað notendur skoða á síðunni okkar sem auðveldar okkur að gera hana enn þægilegri og aðgengilegri.

HVERNIG MEÐHÖNDLUM VIÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR?

Þær upplýsingar sem þú deilir með okkur fara ekki lengra!

Við þolum ekki ruslpóst! Þess vegna ábyrgjumst við að selja aldrei persónuupplýsingar þínar til ótengdra aðila.

Í ákveðnum tilvikum þurfum við að fá til liðs við okkur utanaðkomandi aðila til að veita ákveðna þjónustu. Í sumum tilvikum þurfum við að veita þessum fyrirtækjum upplýsingar sem þau þurfa til að geta veitt okkur og á endanum viðskiptavinum okkar, þjónustu. Sem dæmi, þá þurfum við að láta flutningsaðila fá heimilisfangið þitt svo að hann geti sent vörurnar þínar heim til þín.

Við takmörkum persónuupplýsingar sem slíkum fyrirtækjum er veitt og þeim er aðeins veittur aðgangur að persónuupplýsingum þínum í þeim tilgangi að veita ákveðna þjónustu. 

Með því að gefa upp annað heimilisfang en þitt eigið gengst þú við því að hafa til þess leyfi frá þeim sem veita á vörunni viðtöku.

Back to top
.product-single__add-btn { border-radius: 5px; }