Motorex Quick Clean - Wipe & Go
Enginn aðgangur að vatnsslöngu? Ekkert mál!
MOTOREX QUICK CLEAN tryggir að hjólið þitt sé hreint og glansandi — fljótt, áhrifaríkt og umfram allt, án vatns.*
MOTOREX QUICK CLEAN hentar öllum gerðum reiðhjóla, og þá sérstaklega götuhjóla sem safna oft síður á sig miklum óhreinindum og þurfa því ekki djúpan þvott á hverjum degi. Sérstaklega hugsað fyrir rafmagnshjól þar sem skynsamlegt er að takmarka mikla vatnsnotkun á hjólum með innbyggðum rafbúnaði.
360° úðakerfið gerir notkun auðvelda og nákvæma. Virk hreinsiefni fjarlægja skordýr, óhreinindi, ryk og jafnvel þrjóska skán áreynslulaust án þess að skilja eftir sig leifar. Þökk sé "bón" áhrifum, þá festast ný óhreinindi síður við svo hjólið þitt verður ekki bara hreint, heldur helst það hreint lengur.
Eiginleikar vöru:
- Þarf ekki að skola af eftir notkun
- Má nota á Carbon hjólastell**
- 500 mL brúsi með stillanlegum 360° úðahaus sem virkar jafnvel á hvolfi
- Hreinsar plast, lakkaða fleti og málma án vatns
- Fjarlægir óhreinindi án þess að skilja eftir sig leifar
- Hrindir frá sér óhreinindum og vatni eftir notkun
- Fjarlægir skordýr, ryk og önnur óhreinindi án mikillar fyrirhafnar
*Varast skal að þurrka eða nudda mold og grófan sand af hjólum með klút eða þvottahanska. Ef hjólið er mjög skítugt, t.d. eftir utanvegaferð, þá mælum við ávallt með því að skola hjólið með vatni áður en notuð eru hreinsiefni.
**Ávallt skal skoða fyrirmæli framleiðanda áður en notuð eru ný hreinsiefni á málma og lakkaða fleti sem geta verið viðkvæmir ákveðnum efnum.