Lazer Lupo KinetiCore - Matte Maroon

Verð 11.990 kr

VSK innifalinn

Color: Red
Accessory size

Til á lager

Lazer Lupo KinetiCore MTB Hjálmur- Matte Maroon

Lupo KinetiCore er hannaður fyrir utanvegahjólreiðar þar sem þægindi og stíll fara saman. Hjálmurinn er með flottu innbyggðu skyggni, vel staðsettum loftraufum á enni sem tryggja hámarks loftflæði, góðri vörn á hliðum og Lazer TurnSys kerfi sem gerir þér kleift að stilla hjálminn auðveldlega á ferðinni. Hvort sem þú ert að takast á við hraða og tæknilega slóða eða njóta afslappaðrar hjólaferðar með vinum, þá ertu í öruggum höndum með Lazer Lupo.

Eiginleikar Lazer Lupo KinetiCore hjálmsins:
  • KinetiCore tæknin verndar gegn bæði beinum höggum og snúningskröftum við fall eða árekstur.
  • TurnSys® kerfi, fyrir fljótlega og auðvelda stillingu á stærð.
  • Ein stærð (One size) sem passar flestum með höfuðmál 55-61 cm.
  • Útskornar raufir í hliðum, hannaðar til að koma í veg fyrir þrýsting frá gleraugnaörmum.
  • Saumaðar ólar mPolygiene Biostatic™ Stays Fresh tækni sem lengir endingartíma.
  • Lazer LED ljós passa beint í hjálminn án vandræða.
  • Þyngd: 390 g.

KinetiCore tæknin

Lazer hjálmar með KinetiCore tækni eru þeir fyrstu sem búa yfir vörn gegn snúningskröftum sem er að fullu innbyggð í sjálfan hjálminn. Þetta er gert mögulegt með  svokölluðum „stýrðum aflögunarsvæðum“ (controlled crumple zones) sem virka ef högg á sér stað.

KinetiCore er að fullu innbyggt í hjálminn sem veitir betri vörn, dregur úr þyngd, eykur loftflæði og minnkar plastnotkun við framleiðslu. KinetiCore stendur fyrir algjörlega nýjan hugsunarhátt þegar kemur að því að verja höfuð og heila fyrir snúningskröftum. Þessi glænýja tækni frá Lazer býður hjólreiðafólki upp á aukna vörn og meiri þægindi, á sama tíma og hún léttir hjálminn.

Back to top